Mikið kossaflens átti sér stað á götum úti í höfuðborg Spánar, Madrid, í gærkvöldi þegar hundruð íbúa borgarinnar flykktust út á götur og stræti í þeim tilgangi að smella kossi á næsta mann. Atburðurinn, sem nefnist Besada Masiva á spænsku, var skipulagður af Desigual Kiss Madrid og er hugmyndin á bak hann sá að senda kossa til alls heimsins frá Madrid.
Er talið að hundruð hafi komið saman á Tungltorginu, Plaza de la Luna, í miðborginni til þess að taka þátt.
Á síðasta ári tóku íbúar spænsku borgarinnar Barcelona þátt í sambærilegum atburði og tóku þúsundir þar í bæ.