Myndband af óstöðvandi hláturskasti fjármálaráðherra Sviss hefur slegið í gegn á youtube en í ræðu sem hann hélt nýverið átti hann erfitt með að halda aftur af hlátrinum.
Horft hefur verið á myndbrotið af Hans-Rudolf Merz yfir 300.000 sinnum, bæði á youtube og öðrum síðum. Ræðan hans fjallaði um innflutning á reyktu kjöti og byrjar hann að hlæja þegar ræðan breytist í óskiljanlegt flóð af stofnanamáli.
Þingmennirnir sem hlýða á Merz skellihlæja einnig og sumir hverjir klappa honum lof í lófa. Eftir að myndbrotið sló í gegn tók einn framleiðandi þurrkaðs kjöts upp á því að auglýsa vörur sínar undir slagorðinu: „Glataðu aldrei skopskyninu.“
Hér má sjá myndbandið af ráðherranum: