Setti rottu í brauð og laug upp á bakara

Þessi brauð innihalda líklega engar rottur. Mynd úr myndasafni.
Þessi brauð innihalda líklega engar rottur. Mynd úr myndasafni. Ásdís Ásgeirsdóttir

Suður-kóreskur bakari var í morgun dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar eftir að hann laug því upp á keppinaut sinn að rotta hefði fundist í brauði frá honum.

Bakarinn setti rottu í brauðhleif, tók síðan mynd af herlegheitunum og setti myndina á vinsæla vefsíðu þar sem hann sagðist hafa keypt brauðið hjá öðrum bakara. Hann notaði dulnefni á vefsíðunni, en þegar farið var að skoða málið komst fljótt upp um hann.

Hann viðurkenndi sekt sína og sagðist hafa gert þetta í þeim tilgangi að eyðileggja orðspor keppinautar síns.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg