Önnur bréfasprengja sprakk á Englandi

Bréfsprengjan sem sprakk í morgun er önnur sprengjan sem springur …
Bréfsprengjan sem sprakk í morgun er önnur sprengjan sem springur í Bretlandi á 2 dögum Reuters

Tveir særðust eftir að „póstsending“ sprakk á skrifstofu fyrirtækis í Workingham, í Berkshire í Englandi. Þetta kemur fram á fréttavef Sky News. Þetta gerist degi eftir að bréfasprengja sprakk á skrifstofu í London.

Að sögn lögreglu átti atvikið sér stað við Oaklands Business Centre og tveir særðust minniháttar í sprengingunni.

Byggingin var tæmd og hún girt af.

Lögreglan segist gera sér grein fyrir atvikinu í London en segir að það sé of snemmt að segja nokkuð til um það hvort sprengjuárásin í gær tengist þessari í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert