Dæmdur morðingi var með lík í bílnum

34 ára gamall norskur karlmaður, Quang Minh Pham að nafni, sem fyrir átta árum var dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir manndráp, var handtekinn um helgina þar sem hann var á ferð í bíl en maðurinn var í helgarleyfi frá fangelsinu. Í skottinu á bílnum fannst lík af 31 árs gömlum manni, sem saknað hafði verið í viku.

Norska lögreglan fékk vísbendingu um að Pham væri með lík í bíl sínum. Var Pham handtekinn á hraðbraut nálægt Larvik. Hann og þrír menn aðrir voru í dag ákærðir fyrir morð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert