Al-Qaeda kveðst hafa þrjá bandaríska hermenn í gíslingu

Bandarískur hermaður í Írak.
Bandarískur hermaður í Írak. Reuters

Hópur í Írak sem hefur al-Qaeda-hryðjuverkanetið að bakhjarli sagðist í gær halda þrem bandarískum hermönnum í gíslingu, eftir að hafa náð þeim á sitt vald í blóðugum átökum á laugardaginn. Þúsundir bandarískra hermenna leita hermannanna þriggja á svæðum uppreisnarmanna suður af Bagdad, að því er fréttastofan AP greinir frá.

Gærdagurinn var einn sá blóðugasti í Írak í langan tíma, og féllu að minnsta kosti 124, eða fundust látnir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert