Herskáir Palestínumenn notuðu bíl merktan sjónvarpsstöð

Ísraelskur hermaður við bíl Palestínumannanna
Ísraelskur hermaður við bíl Palestínumannanna Reuters

Blaðamenn hafa fordæmt herskáa Palestínumenn sem í gær notuðu bíl merktan sjónvarpsstöð til að dulbúast og gera árás á varðturn við landamæri Gasa og Ísraels. Fjórir Palestínumenn gerðu í gær misheppnaða tilraun til að ræna hermanni og lést einn þeirra í bardögum við ísraelska hermenn.

Mennirnir yfirgáfu bílinn á flótta og komust undan, hann var hvítur af sömu gerð og oft er notaður af fjölmiðlamönnum og merktur ,,TV” og ,,Press”.

Blaðamenn sem starfa í Palestínu og Ísrael merkja bíla sína til sérstaklega svo síður sé skotið á þá og segja blaðamenn að svona aðferðir verði til þess að gera starf blaðamanna á svæðinu enn hættulegra en það er nú þegar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert