Ítreka dauðahótun gegn breskum blaðamanni

Alan Johnston.
Alan Johnston. Reuters

Palestínskir öfgamenn, sem segjast halda Alan Johnston, blaðamanni BBC, í gíslingu endurtóku hótanir um að drepa Johnston „eins og lamb“ ef Bretar og Jórdanar sleppa ekki múslímskum föngum. Í yfirlýsingunni sem barst AFP fréttastofunni krafðist Her Íslams lausnar þriggja manna sem sitja í fangelsi í Jórdaníu og Bretlandi fyrir hryðjuverk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert