Brúðkaupsgestir létust í Bagdad

Frá Bagdad.
Frá Bagdad. Reuters

Sautján brúðkaupsgestir létust er bílasprengja sprakk í suðurhluta Bagdad í dag. Brúðhjónin slösuðust sem og tugir veislugesta. Sprengjan sprakk fyrir utan ljósmyndastofu í Sjítahverfinu Abu Tchir.

Vitni sagði við AFP fréttastofuna að hann hefði séð tvær litlar rútur fullar af fólki og brunnar til ösku. Sjálfsvígsmaður mun hafa verið á flótta undan öryggissveitum lögreglunnar en bíllinn sprakk er hann lenti á bílalest brúðkaupsins fyrir utan ljósmyndastofuna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert