Finnskum skóla lokað vegna hótana

Finnar eru miður sín vegna atburðanna í Jokele menntaskólanum.
Finnar eru miður sín vegna atburðanna í Jokele menntaskólanum. AP

Lögregla girti í morgun af allar leiðir að menntaskóla í Kyrkslätt í Finnlandi vegna hótana gegn skólanum, sem birtust á netsvæðinu YouTube. Skólinn er ekki langt frá Jokela menntaskólanum þar sem 18 ára piltur myrti átta manns og framdi síðan sjálfsmorð í vikunni. Pilturinn birti daginn áður myndskeið á YouTube þar sem hann boðaði ódæðið.

Lögregla er með viðbúnað við fleiri skóla á svæðinu, þar á meðal í Hyrylä.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert