Opinber borgarsmokkur

Smokkur.
Smokkur. Reuters

Borgaryfirvöld í New York kynntu í dag nýjan, opinberan borgarsmokk í tilefni af Valentínusardeginum sem er á morgun. Smokkurinn er í skrautlegum umbúðum og hægt er að nálgast hann frítt í fagurhönnuðum sjálfsölum.

Heilbrigðisyfirvöld í New York segja að hann verði fáanlegur á 200 stöðum í borginni á næstu vikum.

Borgin dreifði 36 milljónum smokka í fyrra, eða fjórum á hvern borgarbúa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert