Flugvél hrapaði á tvö hús í Los Angeles

Tveggja hreyfla flugvél hrapaði fyrir utan Los Angeles í morgun og lentu hlutar vélarinnar á tveim íbúðarhúsum.    Tveir farþegar vélarinnar slösuðust alvarlega en einnig slösuðust þrír íbúar húsanna.  Vélin sem er af gerðinni Cessna 310 hrapaði nærri Compton/Woodley flugvellinum.  Bolur vélarinnar lenti á þaki eins hússins og vinstri vængur vélarinnar lenti á öðru húsi.

Í vélinni voru tveir karlmenn sem slösuðust alvarlega.  Í einu húsanna slasaðist kona alvarlega, en tveir aðrir sluppu með minniháttar áverka.

Orsök slyssins er í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert