Barnslík fundust í frysti

Lík þriggja nýfæddra barna fundust í frystikistu í húsi í þýska bænum Wenden um helgina. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins.

Á fréttavef tímaritsins Spiegel segir, að hjón og þrjú börn þeirra á aldrinum 18 til 24 ára, hafi búið í húsinu þar sem líkin fundust. 

Nokkur svipuð mál hafa komið upp í Þýskalandi á síðustu árum. Nú síðast komst upp um konu í austurhluta Þýskalands sem myrti níu nýfædd börn sín og kom líkum þeirra fyrir í blómapottum. Konan var dæmd í 15 ára fangelsi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert