Barn varð undir lest í Þýskalandi

Tveggja gamall drengur lést er hann varð undir flutningalest í nágrenni bæjarins Recklinghausen í Þýskalandi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var drengurinn að leika sér á lestarteinunum ásamt fjögurra ára gömlum bróður sínum í gærkvöldi án vitundar foreldranna.

Eldri drengurinn gat forðað sér að teinunum áður en lestin kom og slapp ómeiddur. Að sögn lögreglu sá lestarstjórinn ekki drengina á teinunum fyrr en of seint og gat því ekki stöðvað lestina í tæka tíð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert