„Simbabve stjórnað af herforingjum"

Morgan Tsvangirai á kosningafundi í Simbabve.
Morgan Tsvangirai á kosningafundi í Simbabve. Reuters

Morgan Tsvangirai, forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, lýsti því yfir í dag að í raun sé herforningjastjórn í landinu. Sagði hann að stjórnarandstaðan muni ekki viðurkenna lögmæti stjórnar Roberts Mugabes, forseta, ef hann lýsi yfir sigri í forsetakosningum í júnílok.

„Ef Mugabe lýsir yfir sigri mun hann staðfesta, að stjórnin situr með ólöglegum hætti," sagði Tsvangirai á blaðamannafundi í Harare, höfuðborg landsins.

Þá segir hann að 66 stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar í landinu hafi verið felldir í ofbeldisaðgerðum yfirvalda frá því fyrri umferð forsetakosninganna fór fram í lok mars en önnur umferð kosninganna á að fara fram 27. júní.  

Stuðningsmenn Tsvangirais segja hann hafa hlotið hreinan meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna. Yfirvöld í landinu bera ekki á móti því að hann hafi hlotið fleiri atkvæði en Mugabe en segja forskot hans ekki hafa verið nægjanlegt til að tryggja honum bindandi kosningu.  
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert