Saka Rússa um þrætugirni

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Karel Schwarzenberg, utanríkisráðherra Tékklands, undirrita hið …
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Karel Schwarzenberg, utanríkisráðherra Tékklands, undirrita hið umdeilda samkomulag í gær. AP

Bandarísk yfirvöld hafa sakað Rússa um þrætugirni vegna viðbragða rússneskra stjórnvalda við samningi Bandaríkjanna og Tékklands um uppsetningu eldflaugavarnarkerfis í Tékklandi. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

Talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins Pentagon sagði í gær að viðbrögð Rússa miði greinilega að því að skapa óöryggi í Evrópu. Talsmaður Hvíta hússins, sagði hins vegar að samningaviðræður Bandaríkjanna og Rússa um málið muni halda áfram.

„Við leitum eftir hernaðarlegri samvinnu til að koma í veg fyrir að vinum okkar og bandamönnum stafi hætta af langdrægum eldflaugum frá harðsvíruðum ríkjum á borð við Íran,” sagði Gordon Johndroe, talsmaður Hvíta hússins.  

Skrifað var undir samninginn í gær og í kjölfar þess lýstu rússneskir ráðamenn því yfir að Rússar sæju sig neydda til að bregðast við með hernaðarlegum hætti gangi þau áform sem samningurinn byggir á eftir. Bandaríkjamenn segja uppsetningu eldflaugavarnakerfis í Evrópu fyrst og fremst vera vörn gegn hugsanlegum árásum Írana. Rússar segja slíkt kerfi hins vegar draga úr vörnum Rússlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert