Rússar reiðir vegna gagnrýni

Frá fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Frá fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Reuters

Rússar hafa brugðist illa við gagnrýni Breta og Bandaríkjamanna vegna þess að Rússar beittu neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti refsiaðgerðir gegn yfirvöldum í Simbabve. Hafa Bretar og Bandaríkjamenn lýst furðu á ákvörðun Rússa og jafnvel sagt þá ganga á bak orða sinna. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

Rússar áttu nýlega aðild að ályktun leiðtogafundar G-ríkjanna þar sem lýst er yfir stuðningi við refsiaðgerðir gegn Simbabve.

 Talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins segir gagnrýnina gefa í skyn að Rússar séu ekki verðugir aðilar að G-8. Þá segir að ályktunin hafi átt við um refsiaðgerðir sem sættar væru á af öðrum en öryggisráðinu. Rússar telji öryggisráðið ekki eiga að skipta sér af innanríkismálum ríkja og samþykkt refsiaðgerða gegn Simbabve hefði gefið fordæmi fyrir slíku. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert