Mladic kom upp um Karadzic

Radko Mladic, sem er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi, veitti leyniþjónustumönnum upplýsingar um hvar Radovan Karadzic héldi sig. Með þessu vildi hann vinna tíma í samningaviðræðum um eigið framsal. Breska blaðið Daily Telegraph hefur þetta eftir ónafngreindum þýskum leyniþjónustumönnum.

Telegraph segir, að búist sé við því að Mladic, sem var herstjóri Bosníu-Serba þegar Karadzic var leiðtogi þeirra, verði handtekinn á næstu vikum. Hann hefur farið huldu höfði í rúman áratug en sér nú fram á að geta ekki lengur dulist.

Blaðið hefur eftir þýskum leyniþjónustumönnum, að Mladic hafi undanfarið átt í samningaviðræðum við þá sem leita hans um á hvaða forsendum hann gefi sig fram. Hann hafi veitt upplýsingar um Karadzic til að bjarga eigin skinni, líklega fyrir nokkrum mánuðum.

Mladic vonast til þess, að sleppa við réttarhöld fyrir stríðsglæpadómstóli SÞ í Haag. Þess í stað vill hann svara til saka fyrir dómstóli í Serbíu þar sem ýmsir líta enn á hann sem hetju. Stríðsglæparéttarhöld hófust í Belgrad árið 2004. Á síðasta ári voru m.a. fjórir menn, sem tóku þátt í fjöldamorðunum í Srebrenica í Bosníu dæmdir í samtals 58 ára fangelsi. Karadzic og Mladic eru ákærðir fyrir að bera ábyrgð á því fjöldamorði.

Karadzic ætlaði að gefa sig fram á næsta ári

Svetozar Vujacic, lögmaður Karadzics, segir í viðtali við fréttavef þýska tímaritsins Spiegel í dag, að skjólstæðingur sinn hafi ætlað að gefa sig fram við serbnesk stjórnvöld á næsta ári. Þá hefði hann getað varið sig sjálfur fyrir serbneskum dómstóli. Lögmaðurinn segir, að Karadzic ætli að stýra vörn sinni sjálfur fyrir dómstólnum í Haag en njóta ráðgjafar 4-5 lögmanna.

Ríkisstjórn Serbíu sagði, að Karadzic hefði verið handtekinn síðdegis á mánudag en Vujacic heldur því fram að handtakan hafi farið fram á föstudag. Vujacic segist hafa verið að snæða kvöldverð með Luk, bróðir Karadzics, á föstudagskvöld, þegar þeir fengu fréttir af því að Karadzic hefði verið handsamaður.

Radovan Karadzic er sagður hafa sagt bróður sínum, að hann hafi verið handtekinn í rútu á leið frá Belgrad til Batajnica. Þaðan ætlaði hann til Vrnik í nokkurra daga meðferð í heilsurækt. Hann var með sundskýlu og baðkápu í tösku þegar hann handtekinn.

Lögmaðurinn segir aðspurður, að serbnesk stjórnvöld hafi beðið með að tilkynna um handtöku Karadzics svo þeim gæfust tók til að koma sérsveitarmönnum fyrir víða um landið til að koma í veg fyrir hugsanlegar óeirðir. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »
Paul Watson.

Segja Watson fá réttláta meðferð

15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja

Francois Hollande , forseti Frakklands.
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.
06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Breivik fær tíma til útskýringa

Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.
Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Einangrunarhólkar og mottur
Eigum á lager einangrunarhólka og mottur, einnig lím og annað samsetningarefni. ...
Óska eftir utanborðsmótor 60 til 90 Hp
Óska eftir utanborðsmótor 70 til 90 hp á sanngjörnu verði! e mail: bjoggi11@ma...
Til sölu Chervolet Silverrado 2500 skráður des. 2007 pallhýsi fylgir með
Til sölu Chervolet Silverrado 2500 skráður des. 2007 duromax disel 6,6 lítra,...
Frí auglýsing NÝR VEFUR
Bílaþjónusta.is bíður öllum að auglýsa bíla mótorhjól hjólhýsi og vagna frítt, s...
 
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...
Sýslumaðurinn í kópavogi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...