Mótmæli við Torg hins himneska friðar

Óeinkennisklæddur lögreglumaður á verði skammt frá Torgi hins himneska friðar.
Óeinkennisklæddur lögreglumaður á verði skammt frá Torgi hins himneska friðar. AP

Um tveir tugir manna, reiðir yfir því að vera bornir út úr húsum sínum í miðborg Peking, mótmæltu ekki langt frá Torgi hins himneska friðar. Sögðust þeir eiga sinn lagalega rétt sem ólympíuleikarnir gætu ekki tekið frá þeim. Mótmæli af þessu tagi eru sjaldgæf í Peking og vöktu talsverða athygli.

Einkennisklæddir lögreglumenn umkringdu fljótlega götuna þar sem fólkið var að mótmæla

Ein kona úr hópnum sagði við AP fréttastofuna, að þeir væru ekki á móti ólympíuleikunum. „En þeir mega ekki rífa húsin okkar," sagði hún. 

Lögregla beitti sér ekki  en kona, sem sagðist vera í hverfanefnd, fékk fólkið til að yfirgefa svæðið. 

Borgaryfirvöld í Peking hafa varið jafnvirði um um 3200 milljarða króna til að endurnýja hús og hverfi í borginni vegna ólympíuleikanna, sem hefjast þar á föstudag.  Verið er að rífa íbúðarhús í hverfinu en þar er verið að skipuleggja verslunarhverfi þar sem fyrirtæki á borð við Nike, Starbucks og Rolex munu bjóða vörur. Verður ný verslunarmiðstöð opnuð þar á fimmtudag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert