Gordon Brown með eigið vefsjónvarp

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands.
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands. Reuters

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur sett upp nýja vefsíðu með eigin vefsjónvarpi þar sem lesendur geta fylgst með ræðum hans og efni funda.

Með þessu vonast Brown til þess að hann geti aukið vinsældir sínar.  Þá hvetur Brown notendur síðunnar til þess að setja inn athugasemdir um frammistöðu ríkistjórnar hans. 

Vinsældir Verkamannaflokksins hafa dvínað með Brown í broddi fylkingar og mælist fylgi hans í flestum skoðanakönnunum 10% minni en aðalandstæðings hans Íhaldsflokknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert