Margir sagðir látnir

Notandi sem búsettur er í Kauhajoki og nefnir sig Mr. Saari á vefnum setti myndskeið ... stækka

Notandi sem búsettur er í Kauhajoki og nefnir sig Mr. Saari á vefnum setti myndskeið með sjálfum sér inn í You Tube þar sem hann sést æfa sig með byssu. mbl.is

Fjölmargir nemendur voru skotnir til bana í skotárás sem gerð var í iðnskóla í Kauhajoki í Finnlandi. Ríflega tvítugur nemandi við skólann hóf skyndilega að skjóta á samnemendur sína upp úr klukkan átta í morgun. Umsátri lögreglu kringum skólann lauk nú fyrir stundu þegar byssumaðurinn beindi byssunni að eigin höfði og reyndi að fremja sjálfsmorð án árangurs. Hann var fluttur á Háskólasjúkrahúsið í Tampere til aðhlynningar. Hann mun vera alvarlega slasaður.

„Staðan er mjög alvarleg og fórnarlömbin eru mörg,“ sagði Antti Rantakokko, borgarstjóri Kauhajoki, í samtali við Helsingen Sanomat. 

Á vef danska sjónvarpsmiðilsins TV2 News er haft eftir borgarstjóra Kauhajoki að a.m.k. fjórir séu látnir. Frá spítalanum sem annast um fórnarlömbin berast þau boð að færri en tuttugu séu í hópi særðra og látinna. 

Fréttaveitan AFP hefur eftir Ahti Yli-Mannila, slökkviliðsstjóra bæjarins að margir séu látnir en að enn eigi eftir að fá staðfesta tölu um fjölda fórnarlamba enda sé skólinn stór.

Samkvæmt TV2 News geisar nú eldur í iðnskólanum. Slökkviliðsfólki var meinað að fara inn í bygginguna meðan enn stóð ógn af árásarmanninum. Um leið og fréttir bárust af því að hann væri látinn fór slökkviliðið inn í skólann og náði stjórn á eldinum. Lögreglan óttast hins vegar að byssumaðurinn hafi komið fyrir sprengju í skólanum áður en hann svipti sig lífi. 

Samkvæmt vef finnska útvarpsins hafa á síðustu dögum ratað inn upptökur þar sem gefur að líta ungan mann með skammbyssu. Síðasta myndskeiðið birtist á vefnum fyrir fimm dögum, en elsta myndskeiðið er þriggja vikna gamalt. Ekki hefur enn verið staðfest að maðurinn í myndskeiðunum sé árásarmaðurinn, en á You Tube upplýsir hann að hann eigi heima í Kauhajoki.

„Lífið allt er stríð og þjáning. Þú munt berjast einn í þínu persónulega stríði.  Þetta er stríð,“ skrifaði 22 ára gamall maður frá Kauhajoki áður en hann setti myndskeiðin inn á You Tube. Mr Saari, eins og maðurinn kallar sig á vefnum, birti opið bréf um stríð, einsemd og sársauka og myndaði sjálfan sig þar sem hann var að skjóta með Walther P22 skammbyssu. Það er sama vopn og hinn bandaríski Cho Seung-hui notaði í skotárás sínum í Virginia Tech á síðasta ári.

Mr. Saari var síðast innskráður á You Tube fyrir rúmum þremur klukkustundum eða stuttu áður en skotárásin í iðnskólanum í Kauhajoki hófst.

Iðnskólinn í Kauhajoki þar sem árásin var gerð.

Iðnskólinn í Kauhajoki þar sem árásin var gerð.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »
Paul Watson.

Segja Watson fá réttláta meðferð

15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja

Francois Hollande , forseti Frakklands.
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir

Pakistönsk kona sem hefur orðið fyrir sýruárás. Mynd úr safni.
08:55 Pakistanskar konur sem lifðu af sýruárásir og sögðu frá lífsreynslu sinni í heimildarmynd óttast útskúfun og hefndaraðgerðir verði myndin sýnd í heimalandinu. Myndin vann til Óskarsverðlauna í febrúar í flokki stuttra heimildarmynda. Meira »

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.
06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Rændu hjálparstarfsmönnum

Frá Afganistan.
08:13 Menn vopnaðir byssum rændu í gær tveimur erlendum konum í norðausturhluta Afganistans. Konurnar voru hjálparstarfsmenn en að auki var þremur afgönskum samstarfsmönnum þeirra rænt. Meira »

Breivik fær tíma til útskýringa

Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.
Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hænsnahús Til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
TIL SÖLU GALVANIZERAÐUR HRINGSTIGI
Vandaður nýr hringstigi, eins og á myndinni hérna með. Þó er ekki plötuklæðnig á...
Sjálfskipt Nissan Almera 2001
Til sölu Nissan Almera Luxury árg. 2001, ekin 167 þús., skoðaður 2013, stgr.verð...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...
Kennarar - námsráðgjafi - aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Sveitarfélagið Skagaströnd, Túnbraut 1-3...
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...