Brown: Ber að verja stóra banka

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti gengur til fundar með Jean Claude Trichet, …
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti gengur til fundar með Jean Claude Trichet, bankastjóra Seðlabanka Evrópu, og Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Elysee höllinni í París í dag. AP

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir í París í dag að koma beri í veg fyrir að nokkur stór banki fari á hausinn vegna greiðsluerfiðleika.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tók í sama streng. Sagði hún það vera sérfræðinga fjármálamarkaðarins að finna lausn á yfirstandandi vanda en að stjórnvöld verði þó einnig að axla ábyrgð í þeirri erfiðu stöðu sem nú sé uppi. 

Leiðtogarnir sitja nú fund í boði Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta þar sem farið er yfir erfiða stöðu á fjármálamörkuðum heimsins. Auk Þjóðverja, Breta og Frakka eiga og Ítalir einnig fulltrúa á fundinum.

Búist er við að Sarkozy muni leggja til aukið samráð á milli ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins fyrir næsta fund G8-ríkjanna, að því er fram kemur á vef breska útvarpsins, BBC.

Segir þar að Frakkar vilji að ríkin samþykki að grípa inn til verndar evrópskum bönkum án þess þó að feta í fótspor Bandaríkjastjórnar sem hyggst verja 700 milljörðum Bandaríkjadollara til endurreisnar hagkerfisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert