Rússar skutu af byssum nálægt forsetabílalest

Rússneskir hermenn í varðstöð nálægt Suður-Ossetíu, skutu af byssum nálægt bílalest forseta Georgíu og Póllands, sem voru á ferð á svæðinu. Engan sakaði, að sögn talsmanns forsetaembættis Georgíu.

Míkheil Saakashvili, forseti Georgíu, og  Lech Kaczynski, forseti Póllands, voru í heimsókn í varðstöðinni við Akhalgori þegar Rússarnir hófu skothríðina. Forsetarnir forðuðu sér strax.

Óljóst er hvort skotið var í átt að bílalestinni eða í aðra átt, að sögn  Nato Partskhaladze, talskonu Saakashvilis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert