Danir sniðganga kirkjuna

Meirihluta Dana telur að boðskapur kirkjunnar skipti ekki máli.
Meirihluta Dana telur að boðskapur kirkjunnar skipti ekki máli. Reuters

Fáir Danir hyggjast sækja messu um jólahátíðina. Fram kemur á vef Berlingske Tidende að aldrei hafi jafn fáir sýnt kirkjunni áhuga yfir jólin.

Ef kirkjuathafnir á borð við skírnir, fermingar, brúðkaup eða jarðarfarir eru teknar til hliðar þá kemur í ljós að almenn kirkjusókn hefur dregist saman um 20 prósentustig sl. áratug. Þetta sýnir ný Gallup-könnun sem var gerð fyrir Berlingske Official Journal.

Sóknin var 48% árið 1998 en er nú 28% 2008. Þannig að um sjö af hverju 10 Dönum fara ekki í kirkju nema þeim sé sérstaklega boðið, samanber fermingar, brúðkaup o.s.frv.

Aðeins um þriðjungur Dana hyggst fara í kirkju á jóladag. Fram kemur að flestir Danir séu á þeirri skoðun að boðskapur kirkjunnar skipti ekki máli.

„Ekki gott,“ segir Karsten Nissen, biskupinn í Viborg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert