10 nemendur létust í skotárás

Maður í hermannaklæðum hóf í morgun skotárás í skóla í bænum Winnenden nálægt Stuttgart í suðurhluta Þýskalands. Að minnsta kosti 10 nemendur létust í skotárásinni og margir særðust.

Skotárásin var gerð í Albertville-menntaskólanum þar sem um 1.000 nemendur stunda nám.  

Lögreglan hefur girt af svæðið í kringum skólann en árásarmaðurinn er enn ófundinn. Talið er að hann sé á miðjum þrítugsaldri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert