Jan Guillou var njósnari KGB
Sænski spennusagnahöfundurinn og fyrrum blaðamaðurinn Jan Guillou veitti KGB, leyniþjónustu Sovétríkjanna, upplýsingar um fimm ára skeið, að því er sænska blaðið Expressen hefur upplýst. Guillou gerir lítið úr ferli sínum sem njósnari. Formaður sænskra jafnaðarmanna krefst þess að Guillou leggi spilin á borðið.
Oleg Gordievskij, sem stakk af úr þjónustu KGB, hefur lýst því hvernig forn vinur hans og kollegi Jevgenij Gergei náði Jan Guillou á band KGB. Gordievskij segir að Guillou hafi verið stýrt beint frá Moskvu. Guillou var þá ungur blaðamaður og þótti fengur að því að fá þá á mála KGB.
Jan Guillou gerir lítið úr þjónustu sinni við KGB og segir að leynifundir hans með Jevgenij Gergei hafi verið „ekki fréttir“. Gordievskij segir það vera dæmigerð viðbrögð njósnara sem eru afhjúpaðir. Gordievskij telur þvert á móti að Guillou hafi verið mikill fengur fyrir Jevgenij Gergei, sem hafi haft tvo eða þrjá njósnara á sínum snærum í Svíþjóð.
Mona Sahlin, formaður sænskra jafnaðarmanna, hefur krafist þess að Guillou leggi nú öll spilin á borðið. Hann verði að upplýsa hvaða upplýsingar hann veitti Sovétmönnum um sænska jafnaðarmenn.
Þekktasta söguhetja Jans Guillou er Hamilton greifi, eins konar sænskur James Bond. Höfundurinn virðist því hafa haft betri innsýn í njósnaraveröld kalda stríðsins en mörgum lesendum hans hefur verið ljóst til þessa. Tvær bækur Guillou, Leiðin til Jerúsalem og Illskan, hafa komið út í íslenskum þýðingum. Kvikmyndir eftir bókum Guillou hafa einnig verið sýndar í íslensku sjónvarpi.
Bloggað um fréttina
-
Jón Valur Jensson Sænskur landráðamaður afhjúpaður -
Snorri Bergz KGB -
Frjálshyggjufélagið Hvað með íslenska landráðamenn?
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Erlent Svíi sakaður um að leka upplýsingum til Rússa
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































