Tímósjenkó dregur ásakanir um svik til baka

Júlía Tímósjenkó á kjörstað.
Júlía Tímósjenkó á kjörstað. POOL

Júlía Tímósjenkó forsætisráðherra Úkraínu, hefur dregið til baka ásakanir um að svindlað hafi verið í forsetakosningunum sem fram fóru fyrr í þessum mánuði.

Tímósjenkó hafði hafið undirbúning að kæru til dómstóla vegna málsins, en hún segist núna ekki ætla að bera málið undir dómstóla.

Viktor Yanukovych sigraði í kosningunum og alþjóðlegar stofnanir sem fylgdust með kosningunum sögðust telja að þær hefðu farið heiðarlega fram.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert