Varað við gjóskunni 2007

Askan úr Eyjafjallajökli hefur valdið vandræðum út um víða veröld.
Askan úr Eyjafjallajökli hefur valdið vandræðum út um víða veröld. Hans-Martin

Deild um eftirlit eldfjallagjósku innan alþjóðasamtaka borgaralegra flugumferðarstjórna ræddi það fyrir þremur árum að skilgreina það í hve mikilli gjósku óhætt er að fljúga flugvélum. Flugvélaframleiðendur reyndust vera tregir til að ræða málið.

The Guardian fjallar um málið í dag í tilefni af flugbanni í Evrópu vegna gjóskunnar úr Eyjafjallajökli.  Flugbannið hefur bakað flugfélögum tjón upp á nærri 220 milljarða króna að mati alþjóðasamtaka flugfélaga, IATA. 

Starfshópurinn um eldgosaöskuna, International Airways Volcano Watch Operations Group, ræddi málið á árlegum fundi sínum í Nýja Sjálandi árið 2007. Í fundargerð kemur fram að engin skilgreining sé til á því hve mikla gjósku hver flugvélategund þolir svo hægt sé að gefa út skýrar leiðbeiningar  um hvenær sé óhætt að fljúga. 

Þar segir einnig að þörf sé á skýrum leiðbeiningum bæði frá flugvélaframleiðendum og leyfisveitendum í flugi. Í fundargerðinni kemur einnig fram að setning viðmiðunarmarka sé „erfitt og langvarandi vandamál“.

Í vinnuskjali sem gefið var út að fundinum loknum er varað við því að miklar líkur séu á því að flugumferð stöðvist vegna eldfjallagjósku. Þar er því m.a. spáð að eftir því sem fjarkönnunartækni fleygi fram sé líklegt að svæði þar sem aska finnst eða er talið að aska finnist muni stækka. Það geti leitt til ofurvarkárni og mikils kostnaðar fyrir flugfélögin.

Árið eftir var fjallað um vandamál sem tengdust því að fylgjast með íslenskum eldfjöllum. Þar var rædd tillaga frá Veðurstofu Íslands um aðra „Doppler veðursjá á austurhluta landsins til að hjálpa við að fylgjast með eldfjallavirkni á því svæði.“

Í fundargerð kom fram að  slíkt eldgos gæti haft mikil áhrif á flugumferð yfir Norður-Atlantshaf því íslensk eldfjöll séu í nálægð við mikilvægar flugleiðir. Fundarmenn komust að því að tillagan krefðist vísindalegs mats sem þeir gætu ekki heimilað.

Fimmti fundur starfshópsins var haldinn í Chile aðeins tveimur vikum áður en eldgosið hófst hér á landi. Hann hvatti flugvélaframleiðendur til að ræða öryggismörk hvað varðar eldfjallagjósku í andrúmsloftinu. Í fundargerð kemur fram að IATA hafi upplýst starfshópinn um hvað mikið hafi verið gert til þess að fá fulltrúa iðnaðarins á vinnufundinn en þær tilraunir hafi reynst árangurslausar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert