Vilja hreint þjóðarblóð Mongóla

Adolf Hitler.
Adolf Hitler. mbl.is

Kenningar nasista eru lífseig fyrirbæri og nú hafa þær haslað sér völl í Mongólíu, segir í frétt Guardian í Bretlandi.

Samtökin Tsagaan Khass segjast vera með um 3.000 félaga og þeir heilsa með Hitlerskveðju og skreyta sig með hakakrossum, berjast gegn kínverskum áhrifum í landinu og segjast vera ættjarðarsinnar. Þeir vilji bjarga þjóðinni frá þeim örlögum að risinn í suðri gleypi smáþjóðina.

„Við verðum að tryggja að blóð þjóðarinnar sé hreint, þetta snýst um sjálfstæði okkar,“ segir 23 ára gamall liðsmaður Tsagaan Khass. Mongólar eru flestir svarthærðir, með há kinnbein og skásett augu og því fjarri því að líkjast hinum hreina aría, ljóshærða og bláeygða tröllinu. En það vefst ekki fyrir mongólskum aðdáendum Hitlers.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert