Fjórtán ára í fangelsi fyrir kynmök

Í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er réttað yfir stúlkum sem fullorðnum …
Í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er réttað yfir stúlkum sem fullorðnum þegar þær verða kynþroska Reuters

Fjórtán ára gömul brasilísk stúlka hefur verið dæmd í sex mánaða fangelsi í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrir að hafa stundað kynlíf utan hjónabands með pakistönskum skólabílstjóra. Stúlkan sagði við réttarhöldin að henni hafi verið nauðgað. Eftir afplánun verður stúlkunni vísað úr landi.

Segir í fjölmiðlum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum að hún hafi verið ákærð fyrir að hafa stundað kynlíf með manninum að eigin ósk og hún hafi skipulagt ástarfund þeirra með því að senda honum kynferðisleg smáskilaboð, samkvæmt ákærunni.

Stúlkan sagði við lögreglu og ítrekaði það í réttarsalnum að maðurinn hafi nauðgað sér. Krafðist lögmaður hennar þess að maðurinn yrði ákærður fyrir nauðgun á ólögráða einstaklingi. En þar sem stúlkan er kynþroska þá er réttað yfir henni sem fullorðinni samkvæmt saría-lögum sem gilda í Abu Dhabi. 

Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, var dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa stundað kynlíf utan hjónabands og verður honum einnig vísað úr landi að afplánun lokinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert