Ferðir bin Laden kortlagðar í Wikileaks skjölum

Osama bin Laden.
Osama bin Laden. Reuters

Osama bin Laden, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Al-Qaeda varði þremur mánuðum á stanslausum flótta þvers og kruss um Afganistan, fyrst eftir árásirnar þann 11. september. Þetta kemur fram í leyniskjölum Bandaríkjahers sem Wikileaks birtir.

Skjölin segja að bin Laden hafi fyllst nokkurri örvæntingu eftir að honum tókst naumlega að sleppa úr skjóli sínu í Tora Bora hellunum um miðjan desember árið 2001. Hann hafi verið algjörlega auralaus á flóttanum og slegið 7.000 dollara lán frá velgjörðarmanni sínum, sem hann greiddi til baka innan árs. Áður en hann hélt í hellana er bin Laden sagður hafa tekið á móti stöðugum straumi heimsókna á gistiheimili í Kabúl, þaðan sem hann fyrirskipaði áframhaldandi árásir á vestræn skotmörk.

Á fyrstu dögum loftárása Bandaríkjamanna í Afganistan, í byrjun október 2001, mun bin Laden hafa hitt talíbanaleiðtogann Mullah Mansour í borginni Kandahar, sem og talíbanann Jalaluddin Haqqani, sem enn leiðir hóp skæruliða Talíbana sem standa fyrir árásum á Bandaríkjamenn í Afganistan.

Í nóvember 2001 flýði bin Laden svo í Tora Borahellana þar sem hann hafðist við fram í miðjan desember sama ár. Þaðan kom hann þeim skilaboðum til undirmanna sinna að „styrkjast í sannfæringu sinni fyrir baráttunni, að hlýða leiðtogunum og hjálpa Talíbönum, og að það væru alvarleg mistökað ætla að hætta áður en baráttunni væri lokið".

Afganskur hermaður skoðar einn af hellunum sem liðsmenn al-Qaeda höfðust …
Afganskur hermaður skoðar einn af hellunum sem liðsmenn al-Qaeda höfðust við í á Tora Bora. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert