Jarðskjálfti í Panama

Snarpur jarðskjálfti varð í Panama snemma í morgun, en skjálftinn mældist 6,1 stig samkvæmt upplýsingum frá bandarísku jarðvísindastofnunni. Ekki hafa borist fréttir af mann- eða eignatjóni.

Skjálftamiðjan var um 179 km suður af borginni David, sem liggur við landamæri Kosta Ríka. Skjálftinn var kl. 3:19 að staðartíma (kl. 8:19 að íslenskum tíma).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert