Reiði í Srí Lanka

Stuðningsmenn stjórnvalda eru allt annað en sáttir við skýrslu SÞ.
Stuðningsmenn stjórnvalda eru allt annað en sáttir við skýrslu SÞ. Reuters

Tugþúsundir söfnuðust saman á götum úti í Srí Lanka í dag til að mótmæla skýrslu Sameinuðu þjóðanna þar sem fjallað er um borgarastyrjöldina í landinu. Þar segir hefja eigi rannsókn á meintum stríðsglæpum stjórnarhersins og uppreisnarmenn úr röðum tamíl tígra.

Stuðningsmenn stjórnvalda komu saman í Colombo, höfuðborg Srí Lanka. Þeir héldu á mótmælaspjöldum þar sem yfirmenn SÞ, m.a. framkvæmdastjórinn Ban Ki-moon, voru harðlega gagnrýndir, að því er segir á vef breska útvarpsins.

Fram kemur í skýrslunni, sem var birt í síðustu viku, að hernaðaraðgerðir stjórnarhermanna hafi leitt til þess að tugir þúsunda úr röðum óbreyttra borgara hafi látið lífið. Í skýrslunni segir ennfremur að tamíl tígrarnir hafi notað saklaust fólk sem mannlega skildi.

Ríkisstjórn Srí Lanka neitar þessum ásökunum.

Mahinda Rajapaksa, forseti landsins, ávarpaði mannfjöldann í dag. Hann sagði að Srí Lanka myndi ekki láta undan erlendum þrýstingi.

Veggspjald í Colombo með mynd af Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra SÞ, …
Veggspjald í Colombo með mynd af Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra SÞ, þar sem spurt er hvort hann skammist sín ekki. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert