Sósíalistaflokkurinn beið afhroð

José Luis Rodríguez Zapatero, forsætisráðherra Frakklands, kemur á blaðamannafund í …
José Luis Rodríguez Zapatero, forsætisráðherra Frakklands, kemur á blaðamannafund í kvöld. Reuters

Sósíalistaflokkurinn, stjórnarflokkurinn á Spáni, beið afhroð í sveitarstjórnakosningum í dag.

Þegar búið var að telja nánast öll atkvæði hafði flokkurinn fengið 27,81% atkvæða en Þjóðarflokkurinn, stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, fékk 37,6%.

José Luis Rodríguez Zapatero, forsætisráðherra og leiðtogi Sósíalistaflokksins, viðurkenndi í kvöld að flokkurinn hefði beðið ósigur í kosningunum. Sagði Zapatero, að þriggja ára fjármálakreppa hefði tekið sinn toll og vaxandi atvinnuleysi hefði haft áhrif á viðhorf kjósenda.

Kosið verður til þings á næsta ári.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert