Stúlka dó í feluleik

Reuters

Tíu ára stúlka fannst látin í Phoenix í Arisona í Bandaríkjunum, en hún hafði verið í feluleik með jafnöldrum sínum. Stúlkan hafði lokast inn í geymslu.

Krakkarnir voru í feluleik sl. mánudagskvöld, en á þriðjudagsmorgun fór fjölskylda stúlkunnar að leita að henni. Hún fannst ekki fyrr en á þriðjudagskvöld og var þá látin.

Ekkert bendir til annars en að um slys hafi verið að ræða. Stúlkan var þekkt fyrir að fela sig á óvenjulegum stöðum þegar hún tók þátt í feluleik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert