Merkel spáð öðrum ósigri

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands. TOBIAS SCHWARZ

Búist er við að stjórnarflokkur Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, bíði annan ósigur í kosningum í sambandslýðveldinu Berlín en kjörstaðir voru opnaðir þar klukkan sex í morgun að íslenskum tíma. Talið er að Klaus Wowereit, sem var borgarstjóri fyrir hönd sósíaldemókrata í áratug, fari með sigur af hólmi.

Íhaldsflokki Merkel er spáð öðru eða þriðja sæti í kosningunum en samstarfsflokkur hennar í ríkisstjórn, Frjálsir demókratar, er ekki talinn munu ná manni inn. Verður það í fimmta skipti sem þeim tekst ekki að koma manni að í kosningum á þessu ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert