Ræður mönnum frá limlengingu

Frá Kúbu. Mynd úr myndasafni.
Frá Kúbu. Mynd úr myndasafni. Reuters

Kúbverskur kynlífsfræðingur, sem nýtur mikillar virðingar í heimalandi sínu, ræður ungum Kúbverjum frá því að láta lengja lim sinn í augnabliksæði, en slíkar aðgerðir eru innifaldar í sjúkratryggingum þarlendra.

„Limlengd ræður ekki úrslitaatriðum um bólfimi,“ segir kynlífsfræðingurinn, Ramiro Fragas, sem starfar hjá heilbrigðisráðuneyti Kúbu.

Mikil aukning hefur verið í slíkum aðgerðum á Kúbu. Fragas segir þær með öllu óþarfar. Hann segir meðallengd kúbverskra getnaðarlima vera á bilinu 11 - 15 sentímetrar og það sé í samræmi við alþjóðlegar mælingar.

Hann bendir á að ávinningurinn af limlengdaraðgerðum sé yfirleitt takmarkaður. „Í mesta lagi einn til tveir sentímetrar,“ segir hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert