Eftirminnileg augnablik

Reuters hefur tekið saman myndskeið sem sýnir nokkur skondin, vandræðaleg og vafasöm augnablik í stjórnartíð Silvios Berlusconis, sem í kvöld sagði af sér embætti forsætisráðherra Ítalíu.

Þrátt fyrir að Berlusconi hafi viljað láta líta á sig sem virðulegan þjóðarleiðtoga þá eru til mörg ógleymanleg augnablik þar sem Berlusconi lét allt flakka og oftar en ekki ráku viðstaddir upp stór augu vegna uppátækja Berlusconis.

Meðal annars þegar hann lét „bunga bunga“ ummælin falla er hann afhenti tveimur kaupsýslukonum verðlaun.

Fjölmiðlar gripu orðatiltækið á loftið og var það gjarnan notað um villt teiti.

„Þú ert svo góð að ég neyðist næstum því til að bjóða þér smá bunga, bunga. Já, þú ert nægilega sæt, þú myndir koma,“ sagði ráðherrann fyrrverandi.

Fleiri atvik eru tekin saman í myndskeiðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert