Sarkozy: Ekki sýna myndbönd morðingjans

Nicolas Sarkozy.
Nicolas Sarkozy. Reuters

Nicolas Sarkozy forseti Frakklands hvetur sjónvarpsstöðvar að sýna ekki myndbönd sem fjöldamorðinginn Mohamad Merah tók upp af ódæðisverkum sínum. Sjónvarpsstöðin Al-Jazeera fékk myndböndin send á minnislykli.

Sarkozy segir að ekki ætti undir nokkrum kringumstæðum að sýna myndböndin. Fjölskylda Jonathans Sandlers, kennarans við gyðingaskólann í Toulouse sem Merah myrti, hótar málsókn ef myndböndin verði birt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert