Fengu byssukúlu í pósti

Frá mótmælum í Kína þar sem kaupum Japana á eyjaklasanum …
Frá mótmælum í Kína þar sem kaupum Japana á eyjaklasanum er mótmælt. AFP

Sendiráði Kína í Tókýó í Japan barst byssukúla í pósti í gærmorgun og undir sendinguna var skrifað nafn Yoshihikos Nodas, forsætisráðherra Japans.

Lögregla rannsakar nú sendinguna.

Mikil spenna hefur ríkt á milli ríkjanna tveggja vegna eyjaklasa í Kínahafi sem báðar þjóðir gera tilkall til, en Japanir festu kaup á þremur eyjanna fyrir skömmu.

Spennan hefur meðal annars brotist út í fjöldamótmælum og skemmdarverkum á japönskum fyrirtækjum í Kína.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert