Tyrkir svara í sömu mynt

Tyrkneski herinn svaraði Sýrlendingum í sömu mynt og skutu yfir landamærin í morgun en Sýrlendingar gerðu árás á Tyrkland síðdegis í gær. Voru árásirnar gerðar á sýrlenska héraðið Hatay, samkvæmt frétt tyrknesku fréttastofunnar Anatolia.

Ekki er vitað um meiðsl á fólki, samkvæmt fréttinni.

Árásirnar voru gerðar frá bænum Guvecci sem er skammt frá landamærum Tyrklands. Stjórnarher Sýrlands og her uppreisnarmanna berjast í Hatay héraði. Fyrir þremur dögum gerðu Sýrlendingar árás yfir landamæri Tyrklands og létust fimm Tyrkir í landamærabænum Akckale. Í kjölfarið hófu Tyrkir að skjóta yfir landamæri Sýrlands og hafa Sýrlendingar svarað í sömu mynt.

AFP
AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert