Eldsvoðinn í Brasilíu: 245 látnir

Lögreglumenn gefa ungri konu sem slapp lifandi frá brunanum vatn.
Lögreglumenn gefa ungri konu sem slapp lifandi frá brunanum vatn. AFP

Tala látinna eftir brunann á skemmtistaðnum Kiss í háskólaborginni Santa María í Brasilíu fer stöðugt hækkandi og nú er ljóst að a.mk. 245 eru látnir, að sögn lögreglu. Brasilískir fjölmiðlar fullyrða að eldurinn hafi kviknað þegar hljómsveit kveikti á flugeldum á sviðinu.

Algjör örvænting ríkti að sögn vitna þegar fólk reyndi að flýja út úr klúbbnum þegar eldsins varð vart. Margir létust eftir að hafa andað að sér eitruðum gufur en aðrir urðu undir og létust í troðningnum.

Eftir langa baráttu hefur slökkviliðsmönnum nú tekist að ráða niðurlögum eldsins og er unnið að því að finna lík í brunarústunum. Fyrstu fregnir hermdu að um 90 hefðu látið lífið en sú tala hefur margfaldast síðan.

Allt að 500 manns voru á staðnum

BBC hefur eftir slökkviliðsmanni á vettvangi að hann hafi aldrei á ævi sinni upplifað aðrar eins hörmungar. Bætti hann því við að fórnarlömbin væru allt of ung. Forgangsatriði stjórnvalda er að ná endanlegri tölu yfir hve margir létust og bera kennsl á líkin, en örvæntingafullir ættingjar hafa flykkst á vettvang brunans og bíða frétta. 

Dilma Roussef, forseti Brasilíu, batt í skyndi enda á opinbera heimsókn sína í Síle og er nú á leið til heimalands síns vegna hins hörmulega bruna. Ríkisstjóri Rio Grande de Sul segir í tísti í dag að þetta sé dapur sunnudagur og verið sé að gera allt sem hægt er til að bregðast við ástandinu.

Eldurinn braust út eftir klukkan 2 um nótt að staðartíma og er talið að milli 300 og 500 manns hafi verið á skemmtistaðnum þar sem hljómsveit lék fyrir dansi. Þykkur reykur fyllti staðinn eftir að eldurinn braust út og barst fljótt út.

Leituðu skjóls á salernunum

„Við litum upp og sáum að það var að kvikna í loftinu fyrir ofan sviðið,“ hefur BBC eftir hinni 23 ára gömlu Luana Santos Silva sem var á staðnum. „Systir mín greip mig og dró mig niður á gólfið.“ Hún segir að eina útgönguliðin hafi verið þröngar dyr þar sem þvagan reyndi að troða sér út.

Slökkviliðsmenn reyndu að brjóta niður útvegg til að hjálpa fólki út sem var fast inni á staðnum. Um 15 lík hafa fundist á salernum skemmtistaðarins þar sem einhverjir virðast hafa leitað skjóls. Hundruð ungmenna hafa verið flutt á sjúkrahús vegna reykeitrunar.

Santa Maria er háskólaborg þar sem búa um 250.000 manns og er hátt hlutfall þeirra ungir stúdentar.

180 létust í skemmtistaðabruna

Ættingjar ungra fórnarlamba brunans gráta og bíða fregna í grennd …
Ættingjar ungra fórnarlamba brunans gráta og bíða fregna í grennd við næturklúbbinn Kiss. AFP
Lík er borið af vettvangi brunans.
Lík er borið af vettvangi brunans. AFP
Slökkviliðsmenn berjast við eldinn í nótt.
Slökkviliðsmenn berjast við eldinn í nótt. AFP
Ættingjar bíða í faðmlögum eftir fréttum.
Ættingjar bíða í faðmlögum eftir fréttum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert