Í áfalli yfir harkalegum skilmálum

Sparifjáreigendur verða að súpa seyðið af neyðarláni sem ætlað er …
Sparifjáreigendur verða að súpa seyðið af neyðarláni sem ætlað er að forða Kýpur frá gjaldþroti. Wikipedia/EUCyprus

Kýpverjar eru slegnir yfir fregnum af ströngum lánaskilmálum sem kveða á um stórfellda skattálagninu á sparifjáreigendur í landinu. Auk annarra skilmála var kveðið á um að skattar yrðu greiddir af öllu sparnaði í landinu til að koma til móts við neyðarlán sem alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veitti landinu sem nú er á heljarþröm skulda og verðbólgu. 

Fjármálaráðherrar Evruríkjanna samþykktu í gær að veita Kýpur neyðarlánið, að upphæð 10 milljarða evra, til að koma í veg fyrir að gjaldþrot ríkisins. Samkomulag náðist eftir viðræður sem fram fóru í Brussel á milli ráðherranna og fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Auk þess sem kýpverskum stjórnvöldum er gert að greiða skatta af láninu eru þau skilyrði eru sett fyrir lánveitingunni að stjórnvöld í Kýpur grípi til aðgerða til að rétta af fjárlagahallann, draga úr stærð bankakerfisins og hækka skatta.

Skatturinn sem ríkisstjórn Kýpur mun þurfa að reiða af hendi nemur allt að 10% sem leggst ofan á sparnað, samkvæmt því sem fram kemur á vef BBC.

Eftir að þessir skilmálar lántökunnar urðu ljósir gripu margir íbúar landsins til þess ráðs að taka sparifé út úr hraðbönkum. Háværar óánægjuraddir heyrast víða og virðast margir á þeirri skoðun að skilmálarnir séu ósanngjarnir og komi þegnum landsins illa.

„Sársaukafullt skref“
Neyðarlánssamkomulagið greinir sig frá fyrri úrræðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við skuldavanda Evruríkja og þykir marka nýja tíma í baráttunni við kreppuna sem ríkir á svæðinu.

Forseti Kýpur, Nicos Anastasiades varði lántökuna og sagði hana vera „sársaukafullt skref“ sem nauðsynlegt væri að taka til að forðast gjaldþrot ríkisins. Helsta kosningaloforð Anastasiadesar, sem sigraði forsetakosningar í síðasta mánuði, var að tækla skuldamál landsins af krafti. Hann mun flytja þjóðinni ávarp síðar í dag. 

Skattarnir sem þegnum Kýpur er gert að greiða eru á þá vegu að þeir sem eiga sparifé undir 100.000 evrum borgi af því 6,75%. Þeir sem eiga hærri upphæð en 100.000 inni á sparireikningum skulu borga 9.9%. Skattarnir skulu greiddir í einu lagi.

Lánaveitendur hafa legið undir ámæli fyrir að gera ráð fyrir að hættan á aukinni kreppu á evrusvæðinu sé liðin hjá.

Þó svo að Kýpur sé á meðal smæstu efnahagskerfa innan svæðisins, eða það þriðja minnsta, þá gætu alvarlegar afleiðingar hlotist af gjaldþroti þess. Meðal annars myndi það skaða stærri ríki á borð við Spán og Ítalíu sem nú þegar tefla á tæpasta vaði í skuldamálum. 

Ræna ævisparnaðinum

Kýpur er fimmta landið sem þiggur fjárhagslega aðstoð frá öðrum evruríkjum. Áður hafa Grikkland, Írland, Portúgal og Spánn þegið hjálp af þeim toga. 

Skattaálagningin tekur gildi á þriðjudag, en gripið hefur verið til aðgerða til að koma í veg fyrir millifærslur sem gerðar eru til að komast hjá skattagreiðslunum.

„Þetta er rán og við verðum að þrýsta á að Evrópusambandið komi í veg fyrir þetta,“ sagði Alan, viðmælandi BBC og sparifjáreigandi í Kýpur. „Við förum á eftirlaun og leggjum ævisparnaðinn inn á reikning. Nú virðist svo vera sem þeir geti tekið peningana okkar í leyfisleysi og sagt okkur síðan að við séum hluthafar í gjaldþrota banka,“ bætir hann við.

Tengd frétt: Kýpur fær neyðarlán

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert