Snowden hafnað um hæli á Ítalíu

Snowden hefur sótt um pólitískt hæli í 21 landi.
Snowden hefur sótt um pólitískt hæli í 21 landi. AFP

Ítalir hafa hafnað beiðni Edward Snowden um pólitískt hæli í landinu. Þetta tilkynnti Emma Bonino utanríkisráðherra Ítalíu í fyrradag.

Snowden hefur sótt um pólitískt hæli í 21 landi. Hann hefur nú verið á flugvelli í Moskvu frá 23 júní síðastliðnum. Uppljóstrarinn á yfir höfði sér að verða ákærður fyrir njósnir snúi hann til Bandaríkjanna á ný.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert