Verður ekki tekinn af lífi aftur

Frá Íran
Frá Íran AFP

Írönsk stjórnvöld hafa ákveðið að þyrma lífi manns sem taka átti af lífi nýverið en lifði af aftökuna. Íranskir fjölmiðlar hafa þetta eftir dómsmálaráðherra landsins, Mostafa Pour-Mohammadi.

Maðurinn, sem kallaður er Alireza M í fjölmiðlum, var dæmdur til dauða fyrir að smygl á einu kílói af metamfetamíni fyrr á þessu ári en við þeim glæp liggur dauðarefsing í Íran.

Alireza M, sem er 37 ára tveggja barna faðir, hlaut sinn dóm og átti að taka hann af lífi fyrir tveimur vikum. Snara var sett um háls hans og Alireza M látinn hanga eins og lög gera ráð fyrir í tólf mínútur uns læknir úrskurðaði hann látinn.

Að því búnu var hann fluttur í líkhús, þar sem plasti var vafið utan um „líkið“. Degi síðar vakti það grunsemdir starfsmanna líkhússins að móða var á plastinu og var því flett af. Kom þá í ljós að „hinn látni“ var með lífsmarki. Hann var vitaskuld sendur með hraði á spítala en talsmaður stjórnvalda í Íran lét þegar í stað hafa eftir sér að dómnum yrði framfylgt. Alireza M yrði hengdur um leið og hann hefði heilsu til.

Mannréttindasamtök víða um heim biðluðu til stjórnvalda í Íran um að þyrma lífi mannsins og hafa stjórnvöld nú ákveðið að hætta við aftökuna enda hefði það slæm áhrif á ímynd landsins.

Skrifstofa helsta lögspekings Írans, ayatollah Lotfollah Safi Golpaygani, sendi í síðustu viku frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann liti svo á að öðru máli gegndi um örlög Alireza M en annarra brotamanna. Fram að því höfðu menn einmitt vísað til lagatúlkunar Golpayganis þegar þeir héldu því fram að óhjákvæmilegt væri að framfylgja dómnum yfir Alireza M.

Tekinn af lífi í annað sinn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert