Sá Nigellu aldrei neyta fíkniefna

Nigella Lawson.
Nigella Lawson. AFP

Fyrrverandi aðstoðarkona Nigellu Lawson segist hafa séð ýmis merki um fíkniefnaneyslu sjónvarpskokksins. Hún hafi hins vegar aldrei séð hana neyta slíkra efna.

Þetta kom fram við réttarhöldin í London í dag. Nigella og fyrrverandi eiginmaður hennar höfðuðu mál á hendur tveimur fyrrverandi aðstoðarkonum sínum vegna fjárdráttar. 

Önnur aðstoðarkonan, Elisabetta Grillo, segist hafa séð ýmis merki um fíkniefnaneyslu Nigellu. Hún hafi m.a. séð poka með hvítu dufti, upprúllaðan peningaseðil og kreditkort með leifum af hvítu dufti á.

Spurð hvort hún hefði einhvern tímann séð Nigellu taka fíkniefni svaraði Grillo: „Nei.“

Hún sagðist hins vegar hafa verið meðvituð um fíkniefnaneyslu hennar. Spurð um hvaða fíkniefna hún teldi Nigellu hafa neytt nefndi hún bæði kókaín og kannabis.

Sjá frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar um málið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert