Þriggja ára stúlka lést í árás á Gasa

Syrgendur fylgja 22 ára gömlum Palestínumanni til grafar. Hann var …
Syrgendur fylgja 22 ára gömlum Palestínumanni til grafar. Hann var skotinn til bana á föstudaginn. MOHAMMED ABED

Ísraelskar herþotur gerðu í dag loftárásir á miðstöð Hamas á Gasa-svæðinu. A.m.k. ein palestínsk stúlka féll í árásinni.  Loftárásirnar eru gerðar í kjölfar þess að Ísraelsmaður lést í dag af skotsárum eftir að leyniskytta skaut á hann.

Stúlkan sem lést var þriggja ára gömul. Móðir hennar og tveir bræður hennar særðust í árásinni.

Benjamin Netanyahu sagði fyrr í dag að Ísraelsmenn myndu bregðast hart við árásinni á hermanninn.

Skærur á landamærum Ísraels og Gaza hafa verið tíðar að undanförnu. Á föstudaginn skutu hermenn frá Ísrael 22 ára gamall Palestínumann til bana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert