Ríkisstjórnin haldi eftir upplýsingum

Frá leitinni að farþegavélinni.
Frá leitinni að farþegavélinni. AFP

Meira en helmingur íbúa Malasíu telja að ríkisstjórn landsins haldi eftir upplýsingum um týndu farþegaflugvélina. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem birt var í dag.

54% telja að ríkisstjórnin hafi ekki verið opinská um hvarf farþegavélarinnar. 1.000 íbúar landsins voru spurðir í könnuninni. Um 26% sögðu að ríkisstjórnin hefði sagt satt og rétt frá en 20% voru ekki viss.

Leit stendur enn yfir að farþegavélinni, 38 dögum eftir að hún hvarf af ratsjám á leið sinni frá Kulala Lumpur í Malasíu til Peking í Kína. Talið er að hún hafi brotlent í Indlandshafi.

Yfirvöld í Malasíu hafa ítrekað sagt að þau hafi ekkert að fela en þurfi aftur á móti að fara varlega í yfirlýsingar um stöðu mála.

Könnunin fór fram dagana 24. – 30. mars sl. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert