Segir af sér vegna stefnu stjórnvalda í Gaza-deilu

Sayeeda Warsi.
Sayeeda Warsi.

Aðstoðarutanríkisráðherra Bretlands hefur sagt af sér vegna stefnu breskra stjórnvalda í Gaza-deilunni.

Barónessann Sayeeda Warsi, sem er ættuð frá Pakistan, skrifaði á Twitter: „Mér þykir mjög leitt að tilkynna að í morgun skrifaði ég forsætisráðherranum og tilkynnti honum afsögn mína. Ég get ekki lengur stutt stefnu stjórnarinnar í málefnum Gaza.“

Foreldrar Warsi voru pakistanskir innflytjendur. Hún tók sæti í lávarðadeildinni árið 2007.

Hún tók sæti í stjórn Camerons árið 2010.  

Ítarleg frétt BBC um málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert