Mörg þúsund við útför Browns

Gert er ráð fyrir að mörg þúsund manns verði viðstaddir útför blökkumannsins Michaels Brown í dag. Hann var skotinn, óvopnaður, af lögreglumanni í bænum Ferguson í Missouri þann 9. ágúst sl. Brown var átján ára gamall.

At­vikið hef­ur leitt til lát­lausra mót­mæla og óeirða í bæn­um þar sem mik­il reiði rík­ir meðal íbúa, en mót­mæli hafa einnig farið fram víða ann­ars staðar í Banda­ríkj­un­um. Þó ró hafi færst yfir í bænum, tveimur vikum eftir andlát Brown, verður gífurleg öryggisgæsla við útförina.

Athöfnin fer fram klukkan 10 að staðartíma, 15 að íslenskum tíma, í bænum St. Louis en aðeins nánasta fjölskylda verður viðstödd greftrunina.

Brown, sem var í þann mun að hefja nám í menntaskóla, gekk eftir gangstétt í Missouri þennan örlagaríka dag. Hann var á leið úr matvöruverslun og sagði lögregla að hann hefði stolið sígarettupakka. 25 ára lögreglumaður skaut Brown að minnsta kosti sex sinnum með þeim afleiðingum að hann lét lífið.

Mótmælt hefur verið víða um Bandaríkin þar sem mótmælendur krefjast …
Mótmælt hefur verið víða um Bandaríkin þar sem mótmælendur krefjast réttlætis til handa hinum átján ára gamla Michael Brown. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert